Þar sem ég á nánast aldrei pening reyni ég oft að búa til eitthvað sjálf, sem tekst reyndar mjöööög sjaldan. Mig langaði svo í eitthvað fallegt hárskraut og mundi eftir að vinkona mín hafði búið til hárband úr sokkabuxum. Ég varð að prófa þetta og þetta gekk nú bara ágætlega. En svo var mamma að taka til í skápnum sínum og fann gamlan gallajakka og þá hugsaði ég að það væri nú flott að búa til gallahárband. Það var reyndar einn galli að gallaefni teygist ekki en ég dó nú ekki ráðalaus og fann eldgamla og ryðgaða spöng og einhvernveginn tókst mér að búa til spöng með gallafléttu. Hún tókst nú bara vel upp og ég ákvað að deila með ykkur hvernig ég fór að því og vona að fleiri geti sparað nokkrar krónur með því að nota eitthvað gamalt og gott sem þeir geta fundið heima hjá sér :)
Fyrst er það hárbandið
Þið þurfið gamlar sokkabuxur, tvinna, nál og skæri.
Klippið þrjár jafnlangar lengjur, allt í lagi þótt þetta sé illa klippt
Setjið endana ofan á hvern annan.
Krumpið endana saman og saumið.
Þetta á að líta sirka svona út
Svo fléttið þið alla leið niður.
Saumið endana saman, passið samt að mæla áður en þið saumið þannig að hárbandið passi örugglega á ykkur
Voila, þið eruð komin með eitt stykki hárband
Svo er það spöngin
Svo er það spöngin
Þið getið notað gamlan gallajakka, vesti eða gallabuxur.
Þegar ég gerði spöngina byrjaði ég alveg eins og með hárbandið, ég klippti gallaefni og fléttaði saman.
Svo tók ég gamla mjóa járnspöng og þræddi í gegnum fléttuna og reyndi að láta sjást sem minnst í spöngina.
Svo saumaði ég enda þannig að fléttan myndi ekki rakna upp.
Svona lítur þetta út þegar maður er búin að setja þetta á sig
-Arney
No comments:
Post a Comment